2002-12-13 00:42:02# 128. lþ. 56.4 fundur 441. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# (Jöfnunarsjóður) frv. 167/2002, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur, 128. lþ.

[24:42]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það þjóni litlum tilgangi að þrátta fram á nótt um þessi atriði.

Það er óumdeilt að sveitarfélögin eru í ár búin að fá 3.750 millj. kr. upp í þessar 4.000 millj. kr. sem þau töldu til skuldar. Við það bætist síðan á næsta ári.