2002-12-13 01:04:02# 128. lþ. 56.6 fundur 370. mál: #A húsnæðismál# (niðurfelling skulda) frv. 163/2002, Frsm. ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur, 128. lþ.

[25:04]

Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, frá félmn.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Inga Val Jóhannsson og Óskar Pál Óskarsson frá félagsmálaráðuneyti og Guðmund Bjarnason og Einar Jónsson frá Íbúðalánasjóði.

Umsagnir um málið bárust frá Iðnnemasambandi Íslands, Félagsstofnun stúdenta og FÍN -- Félagsíbúðum iðnnema. Ég vil geta þess, hæstv. forseti, að umsagnir þeirra voru jákvæðar.

Með frumvarpinu er lagt til að stjórn Íbúðalánasjóðs verði veitt heimild til að afskrifa hluta af skuldum félags eða félagasamtaka við sjóðinn gegn greiðslu á eftirstöðvum vanskila enda sé niðurfelling skulda liður í samræmdum aðgerðum kröfuhafa í tengslum við heildarendurskipulagningu á fjármálum viðkomandi. Er frumvarpið m.a. til komið út af alvarlegum greiðsluvanda Félagsíbúða iðnnema vegna reksturs þeirra á leiguíbúðum ætluðum námsmönnum.

Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Pétur H. Blöndal skrifar ekki undir álitið, en var þó viðstaddur afgreiðslu málsins.

Undir álitið skrifa hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, Magnús Stefánsson, Drífa Hjartardóttir, Kristján Pálsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.