Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 244. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 248  —  244. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)



1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er orðast svo:
    Hafi aðili ekki náð að nýta sér að fullu eða hluta þær aflaheimildir sem var úthlutað á fiskveiðiárinu 2001/2002 til tilrauna með áframeldi á þorski á því fiskveiðiári, sbr. b-lið 16. gr. laga nr. 85 15. maí 2002, um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, er ráðherra heimilt að samþykkja að ónýttar aflaheimildir verði nýttar í sama tilgangi á fiskveiðiárinu 2002/2003.
    Þær 500 lestir af óslægðum botnfiski, sem ráðherra hafði til ráðstöfunar á fiskveiðiárinu 2001/2002 til stuðnings byggðarlögum sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi, sbr. 3. mgr. 17. gr. laga nr. 85 15. maí 2002, um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, skulu bætast við þær aflaheimildir sem ráðherra hefur til ráðstöfunar í sama tilgangi á fiskveiðiárinu 2002/2003, sbr. 2. málsl. 9. gr. laga nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í lögum nr. 85 15. maí 2002, um breytingar á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, voru m.a. ákvæði um sérstakar aflaheimildar sem ráðherra skyldi ráðstafa, annars vegar til tilrauna með áframeldi í þorski og hins vegar til stuðnings byggðarlögum sem lent hefðu í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
    Samkæmt b-lið 16. gr. laga nr. 85/2002 hefur ráðherra til ráðstöfunar 500 lestir af þorski til tilrauna með áframeldi í þorski. Heimild þessi tók gildi á fiskveiðiárinu 2001/2002 og gildir næstu fimm fiskveiðiár. Aflaheimildum þessum var því fyrst úthlutað á síðasta ári en vegna þess hve liðið var á fiskveiðiárið þegar lögin voru samþykkt og undirbúningi reglna um úthlutunina þar af leiðandi lokið nýttust þessar heimildir ekki nema að hluta og er hér lagt til að ónýttrar aflaheimildir fiskveiðiársins 2001/2002 flytjist til yfirstandandi fiskveiðiárs.
    Með 4. gr. laga nr. 85/1990 var 9. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, breytt þannig að ráðherra var veitt heimild til að ráðstafa árlega allt að 1.500 lestum af botnfiski til stuðnings byggðarlögum sem lent hefðu í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Hafa skyldi í því sambandi samráð við Byggðastofnun. Í 3. mgr. 17. gr. laga nr. 85/2002 segir að á fiskveiðiárinu 2001/2002 skyldi úthlutun þessi þó takmarkast við 500 lestir. Þar sem það hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir að setja reglur um þessa sérstöku úthlutun kom hún ekki til framkvæmda á fiskveiðiárinu 2001/2002. Er því lagt til að þessi heimild flytjist til yfirstandandi fiskveiðiárs og verði því úthlutað 2.000 lestum í framangreindum tilgangi í ár.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum 38/1990,
um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

    Tilgangur frumvarpsins er að leyfa flutning á ónýttum aflaheimildum milli ára.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi aukinn kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.