Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 395. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 627  —  395. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2002, um breytingu á VII. viðauka (Gagnkvæm viðurkenning á starfsmenntun og hæfi) við EES- samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Jóhannsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Bryndísi Helgadóttur frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2002 frá 25. júní 2002, um breytingu á VII. viðauka (Gagnkvæm viðurkenning á starfsmenntun og hæfi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/5/EB frá 16. febrúar 1998, um að auðvelda lögmönnum að starfa til frambúðar í öðru aðildarríki en þar sem þeir hlutu starfsmenntun sína og hæfi.
    Tilgangur tilskipunarinnar er að gera lögmönnum kleift að starfa í öðru aðildarríki en þar sem þeir fengu starfsréttindi sín, undir starfsheiti heimalands síns og einnig að auðvelda þeim að fá starfsheiti gistiríkisins. Með innleiðingu tilskipunarinnar er íslenskum lögmönnum gert auðveldara að starfa sem lögmenn í öðrum EES-ríkjum og á sama hátt er erlendum lögmönnum gert auðveldara að starfa hér á landi. Að mati dóms- og kirkjumálaráðuneytis kallar innleiðing tilskipunarinnar á breytingar á lögum nr. 77/1998, um lögmenn, en frumvarp þess efnis hefur enn ekki verið lagt fyrir Alþingi.
    Magnús Stefánsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Jónína Bjartmarz voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 4. des. 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Guðmundur Árni Stefánsson.


Lára M. Ragnarsdóttir.



Björn Bjarnason.


Ögmundur Jónasson.


Einar K. Guðfinnsson.