Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 414. máls.
128. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 653  —  414. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. l. nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Björn Björnsson frá Íslandsbanka og Sigurð B. Stefánsson frá Starfsmannafélagi Íslandsbanka.
    Umsagnir um málið hafa borist frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
    Með frumvarpinu er lagt til að lífeyrissjóðum með bakábyrgð banka verði veitt rýmri heimild til þess að ákveða viðmið framreiknings lífeyrisréttinda en lögin gera ráð fyrir. Þannig geti þeir stuðst við aðrar launavísitölur sem Hagstofa Íslands birtir í stað meðalbreytingar dagvinnulauna hjá opinberum starfsmönnum samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

    BREYTINGU:

    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    2. málsl. 1. mgr. 54. gr. laganna orðast svo: Lífeyrissjóðum með bakábyrgð ríkis eða sveitarfélaga sem kjósa að starfa áfram á óbreyttum réttindagrundvelli er þó heimilt að breyta viðmiðum sínum vegna töku lífeyris á grundvelli eftirmannsreglu, sbr. reglugerðir sjóðanna, þannig að lífeyrir breytist í samræmi við meðalbreytingar dagvinnulauna hjá opinberum starfsmönnum samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands, en lífeyrissjóðum með bakábyrgð banka er heimilt að styðjast við aðrar launavísitölur sem Hagstofa Íslands birtir, enda liggi fyrir samkomulag aðila kjarasamninga viðkomandi sjóðfélaga.

    Jóhanna Sigurðardóttir, Hjálmar Árnason og Árni R. Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 10. des. 2002.



Vilhjálmur Egilsson,


form., frsm.


Kristinn H. Gunnarsson.



Gunnar Birgisson.



Einar K. Guðfinnsson.


Ögmundur Jónasson.


Jóhann Ársælsson,


með fyrirvara.