Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 442. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 695  —  442. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. um búnaðargjald, nr. 84 frá 26. maí 1997, með síðari breytingum.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Á eftir 1. gr. komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
     a.      (2. gr.)
                  Í stað 1. og 2. mgr. 6. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Tekjum af búnaðargjaldi skal skipt í samræmi við viðauka við lög þessi, sbr. þó 3. mgr.
     b.      (3. gr.)
                   Ákvæði til bráðabirgða III í lögunum fellur brott.