Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá formanni þingflokks sjálfstæðismanna um mannabreytingar í nefndum:
,,Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur ákveðið eftirfarandi breytingar á skipan þingmanna Sjálfstæðisflokksins í fastanefndir og alþjóðanefndir Alþingis, sbr. 16. gr. þingskapa:
Arnbjörg Sveinsdóttir tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur í allshn. og samgn., svo og sæti varamanns í Íslandsdeild Norðurlandaráðs og Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.
Guðmundur Hallvarðsson tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur í iðnn.
Sólveig Pétursdóttir tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur í kjörbn.
Arnbjörg Sveinsdóttir kemur í stað Guðmundar Hallvarðssonar í fjárln.
Þetta tilkynnist yður hér með.
Einar K. Guðfinnsson,
formaður þingflokks Sjálfstfl.``
Þetta bréf er dagsett 28. janúar 2004.