Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla ekki að svara því nákvæmlegar en ég gerði í minni ræðu hvað ég á við. Ég tel að eins og kemur fram í þessari ályktun Verkalýðsfélags Húsavíkur þá nálgist menn málið á skynsamlegri hátt en að fela dómsmrh. að fara að sinna þessu máli.