Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég skil það vel að hæstv. dómsmrh. sjái þarna eitthvað sem má flokka og skilgreina sem tæknilegan agnúa á málinu. Andi tillögunnar er hins vegar ljós og það er ekkert óeðlilegt þó að ég spyrji hæstv. dómsmrh., sem er æðsti yfirmaður ættleiðingamála, hvaða skoðun hann hafi á málinu að öðru leyti.