Styrkir til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum

Mánudaginn 09. febrúar 2004, kl. 17:24:46 (3977)

2004-02-09 17:24:46# 130. lþ. 60.6 fundur 85. mál: #A styrkir til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum# þál., dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 130. lþ.

[17:24]

Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það með ræðumanni að það er ekkert óeðlilegt að hann spyrji. Ég tel að ég hafi lýst þessari skoðun minni áðan. Ég tel að ef í ljós kemur að menn njóti ekki jafnræðis sem foreldrar hér í landinu eftir því hvaðan þeir fá sín börn þá þurfi að skoða það mál sérstaklega.