Atli Gíslason (andsvar):
Frú forseti. Hv. þm. kom ekki með svar við því hvort Framsfl. vildi beita sér fyrir því að fresta þeim skattalækkunum á hátekjuskatti og eignarskatti sem nú eru fyrirhugaðar.
Síðan bið ég hv. þm. um að lesa ræðu mína sem ég flutti hér fyrr í dag, því ég setti ekki samasemmerki á milli fátæktar og fíkniefnaneyslu, ég leitaði í ákveðnar líkur og hugleiddi þær.