Vatnsveitur sveitarfélaga

Mánudaginn 16. febrúar 2004, kl. 17:07:51 (4270)

2004-02-16 17:07:51# 130. lþ. 64.4 fundur 576. mál: #A vatnsveitur sveitarfélaga# (heildarlög) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 130. lþ.

[17:07]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í frv. er gert ráð fyrir því að sveitarstjórn geti falið öðrum aðila rekstur veitunnar. Þar er um að ræða reglur sem setja þarf ef sveitarfélagið ákveður af einhverjum orsökum að leysa til sín veituna að nýju og taka rekstur hennar yfir.