Halldór Blöndal (andsvar):
Frú forseti. Ég vil vekja athygli hv. 10. þm. Norðvest., Sigurjóns Þórðarsonar, á því hvaða mál er hér til umræðu, frv. til laga um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu. Þetta sýnir ljóslega að við leggjum upp úr því að það séu ströng ákvæði um það hvernig menn umgangast landið þar í kring.