Anna Kristín Gunnarsdóttir (andsvar):
Frú forseti. Ég get fullvissað hæstv. landbrh. um það að ég hlustaði á ræðu hans af athygli. Í henni komu fram ágætar skýringar á því hvers vegna frv. er lagt fram, enda kemur það líka mjög skýrt fram í skýringum við frv. En mín skoðun er sú að þingmönnum beri að skilja það sem þeir eru að samþykkja. Þess vegna legg ég fram þessar spurningar mínar fyrir ráðherrann.