Skipulag sjóbjörgunarmála

Þriðjudaginn 02. mars 2004, kl. 16:39:23 (4777)

2004-03-02 16:39:23# 130. lþ. 74.9 fundur 335. mál: #A skipulag sjóbjörgunarmála# þál., Flm. JÁ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 130. lþ.

[16:39]

Flm. (Jóhann Ársælsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir þáltill. um úttekt á skipulagi sjóbjörgunarmála. Flm. ásamt mér eru hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Einar Már Sigurðarson.

Tillögugreinin hljóðar svo:

,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera úttekt á skipulagi sjóbjörgunarmála með það að markmiði að auðvelda og hraða björgunaraðgerðum þegar slys hafa orðið.``

Þessi þáltill. var lögð fram á 127. og 128. löggjafarþingi en varð ekki útrædd og er nú lögð fram óbreytt.

Á Íslandi er samstaða um að allt skuli gert sem mögulegt er til að tryggja öryggi sjófarenda. Björgunarsveitir og stjórnvöld þurfa þess vegna að vera stöðugt á varðbergi til að nýta nýjustu tækni og nýja möguleika til að auka öryggi á sjó og flýta björgunaraðgerðum þegar slys hafa orðið. Flutningsmenn telja rétt að stjórnvöld fari vandlega yfir skyldur sínar hvað þessi mál varðar en í samráði við aðra sem annast framkvæmd þeirra í því skyni að bæta enn frekar það öryggiskerfi sem fyrir er. Minna má á að ýmsar breytingar hafa orðið á skipulagi björgunarmála á undanförnum árum og af þeim ástæðum er nauðsynlegt að stjórnvöld skoði hvort hlutverkum sé þar skipt með skilvirkum og öruggum hætti eða hvort gera þurfi breytingar á lögunum í því skyni.

Sjóslys geta orðið hvar sem er á miðunum umhverfis landið og við ströndina en þó hefur reynslan sýnt að sumir staðir við strendur landsins eru mun hættulegri en aðrir. Sem dæmi má nefna Snæfellsnes og Reykjanes. Á sumum þessara staða er afar erfitt að koma við björgun frá landi og um algerar vegleysur er þar að fara. Þó að notkun þyrlna hafi aukið möguleika á björgun úr lofti mun aðstoðar frá landi alltaf verða þörf.

Á suma af þessum stöðum mætti gera akfæra slóða sem mundu nýtast björgunarmönnum þegar slys yrðu. Gerð slíkra slóða, glögg merking þeirra og annarra slóða sem nýta má til að nálgast slysstað og við leit með ströndum fram getur flýtt fyrir því að hjálp berist. Einnig ber að skoða hvort staðsetning einhvers konar búnaðar eða aðstöðu á þessum sérstöku hættustöðum væri skynsamleg. Fyrrnefndar aðgerðir geta nýst björgunar- og leitarmönnum og einnig aukið öryggi þeirra sjálfra við mjög erfiðar aðstæður sem víða eru á þessum hættulegu strandsvæðum. Flutningsmenn leggja til að skoðað verði hvar þörf er framkvæmda af þessu tagi og að stjórnvöld tryggi fjármuni til slíkra verkefna strax og aðgerðaáætlun liggur fyrir á einstökum svæðum.

Þó að betri skip og margs konar öryggisbúnaður þeirra hafi aukið öryggi á sjó eru sjóslys enn algeng við strendur landsins.

Ný tækni við staðsetningu skipa og björgun hefur gert kleift að koma til hjálpar í neyðartilvikum miklu oftar og fyrr en áður var hægt. Kosti þeirrar tækni sem til er hefur þó ekki tekist að nýta til fulls. Búnaður til staðsetningar skipa gerir til dæmis mögulegt að hefja björgunaraðgerðir fáeinum mínútum eftir að skip lendir í nauðum þótt ekki hafi borist frá því neyðarkall. Öryggi boðsendinga frá þessum tækjum hefur þó ekki verið nægilegt og þessi tækni hefur því ekki nýst sem skyldi. Úrbóta er þörf bæði hvað varðar boðsendingar frá staðsetningartækjum og móttöku þeirra. Bæta þarf búnað í skipum og tryggja með endurvarpsstöðvum öryggi sendinga frá þeim. Reglur um tilkynningarskyldu þarf að endurskoða eigi að tryggja að boð um slys berist strax þó að ekki berist neyðarkall frá skipi. Flutningsmönnum er ljóst að þeir sem annast björgunarmál eru að endurskoða þessi málefni, ævinlega, og er þessari tillögu ekki ætlað að trufla þá málefnavinnu. Stjórnvöld bera hins vegar ábyrgð á því skipulagi sem ríkir og á því að fjármunir fáist til nauðsynlegra úrbóta.

Þess vegna er tillagan flutt, hæstv. forseti, og ég tel ástæðu til að minna á að fyrir stuttu varð líklega mannbjörg einmitt vegna þess að búnaður af því tagi sem hér er nefndur virkaði. Þó að ekki bærist boð, neyðarkall, frá viðkomandi bát virkaði þessi búnaður og það tókst að bjarga manninum. Þess vegna þurfa menn auðvitað að fara yfir það hvort nægilegt öryggi sé í þessu. Önnur slys hafa orðið hér fyrir ekki löngu síðan þar sem þessi búnaður dugði ekki.

Ég ætla svo að minna á það aftur í lokin sem ég sagði í greinargerðinni áðan að það eru mjög erfiðar aðstæður á stöðum þar sem slys hafa orðið ítrekað á undanförnum árum, aðstæður sem björgunarsveitir þurfa að glíma við þegar slys hafa orðið og vel mætti gera auðveldari aðgangs fyrir björgunarsveitir. Á slíkum stöðum ætti líka að vera einhver lágmarksbúnaður sem björgunarsveitir þyrftu þá ekki að hafa með sér þegar slys hafa orðið.

Hæstv. forseti. Ég vonast til þess að þetta mál fái framgang núna og trúi því að þarna sé á ferðinni málefni sem skipti máli að sé ævinlega í endurskoðun. Ég er ekki með ræðu minni hér eða þessum tillöguflutningi að kasta neinni rýrð á það sem gert hefur verið og ekki á þá endurskoðun sem fór fram hér síðast, heldur einungis að benda á að sumir hlutir eru þar eftir enn og að aldrei munum við komast í það mark að við teljum að hér hafi verið að fullu unnið það sem til þarf.