Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tel að hér sé hreyft ákaflega þörfu máli til úrvinnslu og athugunar. Mér sýnist hins vegar óþarft að hafa þann fyrirvara á að nefndin skili ekki áfangaáliti fyrr en 1. janúar 2006. Ég vil spyrja hvort ekki væri eðlilegt að nefndin gæfi einhverjar vísbendingar um hvað hún teldi hagkvæmast í þessu máli varðandi byggingu við Landspítala -- háskólasjúkrahús við Hringbraut fyrr en 1. janúar 2006. Ég geri þá athugasemd, hæstv. forseti.