2004-03-08 15:02:45# 130. lþ. 78.94 fundur 388#B yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði# (tilkynning ráðherra), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 130. lþ.

[15:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Áður en gengið verður til dagskrár hefur hæstv. forsrh. óskað eftir því að gefa yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Það er samkomulag milli þingflokka um að að lokinni ræðu hæstv. forsrh. tali einn fulltrúi hvers þingflokks, annarra en þingflokks Sjálfstfl., og að forsrh. hafi tækifæri til andsvara í lok umræðunnar ef hann telur ástæðu til.