Sigurjón Þórðarson:
Frú forseti. Ef ég man rétt lagði Náttúrufræðistofnun til fimm ára veiðibann vegna þess að ekki fékkst í gegn sölubann. En síðan var ákveðið af hæstv. umhvrh. að bannið yrði til þriggja ára. Því væri fróðlegt að fá upplýsingar um þetta hjá hæstv. ráðherra: Ef rannsóknir sýna fram á að það verði mikið um rjúpu núna mun hún þá endurskoða umrætt veiðibann? Það væri fróðlegt að fá að heyra það áður en hún lætur af embætti.