Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Ástæðan er ekki sú að flutningur sé að aukast svo mjög. Ég hef reyndar engar sérstakar tölur um það. Ástæðan er einungis sú sem ég nefndi í ræðu minni að verið er að gæta samræmis á milli hliðstæðra hluta og hliðstæðrar afgreiðslu hjá Fiskistofu.