Mörður Árnason (andsvar):
Forseti. Þetta er merkileg lögfræði og umhugsunarverð. Ég tek þá næstu daga í að hugsa um það. En spurningin sem hæstv. forsrh. þarf að svara mér enn fremur er: Lítur hann á eign íslensku þjóðarinnar á Þingvöllum með sama hætti og ríkiseign í merkingunni fasteign eða jörð? Ef ekki, hver er þá munurinn?