Pétur H. Blöndal (andsvar):
Frú forseti. Þungaskatturinn er lagður af þannig að í staðinn kemur litun og mælunum er fækkað verulega. Mér skilst að þeir séu um 15 þús. í dag og þeim mun fækka niður í þriðjung þess. Sá kostnaður minnkar mikið. Ég held að þar með sé ég búinn að svara hv. þm.