Erfðafjárskattur

Fimmtudaginn 15. apríl 2004, kl. 10:44:04 (6366)

2004-04-15 10:44:04# 130. lþ. 97.20 fundur 924. mál: #A erfðafjárskattur# (lagaskil) frv. 15/2004, Frsm. meiri hluta PHB (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 130. lþ.

[10:44]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 14/2004, um erfðafjárskatt. Frv. er frá meiri hluta efh.- og viðskn.

Hinn 1. apríl sl. tóku gildi ný lög um erfðafjárskatt, nr. 14/2004 sem samþykkt voru þann 23. mars sl. Gildistökuákvæði frumvarps til laganna miðaði að því að um skipti á dánarbúum þeirra sem önduðust fyrir 1. apríl 2004 skyldi fara eftir ákvæðum eldri laga nr. 83/1984, um erfðafjárskatt. Um skipti á dánarbúum þeirra sem andast 1. apríl 2004 og síðar skyldi fara eftir hinum nýju lögum um erfðafjárskatt.

Í meðförum þingsins var sú breyting gerð á gildistöku\-ákvæðinu að nýjum málslið var bætt við greinina þess efnis að um skipti á dánarbúum þeirra er hafa heimild til setu í óskiptu búi skuli fara eftir ákvæðum laga nr. 14/2004. Er þessi nýi málsliður í raun undantekning frá þeirri meginreglu sem að framan greinir þess efnis að dánardægur ráði úrslitum um hvorum lögunum skuli beita. Ætlunin með þessari viðbót var að hún afmarkaðist við þá sem hafa heimild til setu í óskiptu búi. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hvort heimildar til setu í óskiptu búi er aflað fyrir eða eftir 1. apríl 2004.

Eftir setningu laganna hafa vaknað spurningar um það hvort kveðið sé á um það með nægilega skýrum hætti í lögunum hvaða reglur gildi um skipti á dánarbúum þeirra sem önduðust fyrir 1. apríl 2004 í þeim tilvikum sem ekki er heimild til setu í óskiptu búi. Hafa komið fram ábendingar um að þetta gildistökuákvæði og þessi lagaskil gætu orkað tvímælis. Til að taka af allan vafa er þetta frv. flutt þannig að lögin séu algjörlega skýr að þessu leyti.

Með bráðabirgðaákvæði því sem hér er lagt til að bætt verði við lögin er leitast við að taka af öll tvímæli hvað varðar lagaskil milli eldri og nýrri laga um erfðafjárskatt. Með frumvarpinu er kveðið á um að lög nr. 83/1984, um erfðafjárskatt, með síðari breytingum, gildi um skipti á dánarbúum þeirra sem önduðust fyrir 1. apríl 2004. Gildir það hvort sem þau búskipti eru hafin eða ekki. Frá þessu er þó sú undantekning, sbr. 3. málsl. 21. gr. laga nr. 14/2004, að nýju lögin taka til búskipta þeirra er hafa heimild til setu í óskiptu búi, þótt andlát hafi verið fyrir 1. apríl 2004, fari búskiptin ekki fram fyrr en eftir gildistöku laganna.

Að lokinni umræðu um þetta mál legg ég til að því verði vísað til hv. efh.- og viðskn. þó að meiri hluti hennar flytji málið, þar sem menn munu leitast við að fá álit sérfræðinga á því að þessi lagaskil séu fullkomlega í lagi og ekki séu nokkur tvímæli um það hvernig túlka beri lögin.