Veðurþjónusta

Föstudaginn 16. apríl 2004, kl. 12:56:11 (6525)

2004-04-16 12:56:11# 130. lþ. 98.18 fundur 784. mál: #A veðurþjónusta# frv., umhvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 130. lþ.

[12:56]

Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan þá geri ég ekki ráð fyrir sérstökum breytingum á þeim aðferðum sem notaðar hafa verið áður gagnvart þjónustu við sjómenn eða í samskiptum milli Veðurstofunnar og Siglingamálastofnunar. En mér finnst eðlilegt að sérstaklega verði farið yfir það í nefndinni.