Frsm. menntmn. (Dagný Jónsdóttir):
Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. menntmn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 53/2002, um Tækniháskóla Íslands. Nefndarálit þetta er samhljóða nefndarálitum á þskj. 1456, um Háskólann á Akureyri, og þskj. 1455, um Kennaraháskóla Íslands, og leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálitið rita Gunnar Birgisson, formaður, Kjartan Ólafsson, Björgvin G. Sigurðsson, Dagný Jónsdóttir, Valdimar L. Friðriksson og Kolbrún Halldórsdóttir.