Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil af þessu tilefni taka fram að það hefur unnist mjög vel á þessu þingi og óvenjumörg mál þingmanna hafa verið tekin á dagskrá.
Ég vil jafnframt ítreka það sem ég sagði, ég hef ekki neitað þingmönnum Samf. um að taka eitt einasta mál á dagskrá sem þau hafa beðið um.