Jónína Bjartmarz (andsvar):
Enn og aftur, hv. þingmaður, við erum að ræða hér þessa skýrslu sem hæstv. menntmrh. mælti fyrir í byrjun dags. Við erum ekki að ræða efni frv. Það er búið að dreifa því og umræðan um það verður tekin í annan tíma þannig að ég haldi því til haga.
Að öðru leyti skil ég ekki spurningu hv. þm. og mér finnst verst að hann á ekki kost á öðru andsvari til að árétta hana. Það er samt sjálfsagt síðar í umræðunni í dag að skýra eitthvað sem hv. þingmanni fannst ekki skýrt í ræðu minni.