Pétur H. Blöndal (andsvar):
Frú forseti. Það er eðli stjórnmála að velja úr leiðum að ákveðnu marki. Ég veit að við hv. þm. höfum ekki sömu skoðun á því hvort fara eigi samtryggingarleið eða einkavæðingarleið í uppbyggingu á þjóðfélaginu. Ég treysti á einstaklinginn. Hann treystir á samtrygginguna. Þetta eru bara tvær mismunandi lífsskoðanir. Ég er ekkert að segja að hans lífsskoðun sé röng, né getur hann sagt að mín sé röng.