Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 16:13:12 (7359)

2004-05-03 16:13:12# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[16:13]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég er algjörlega ósammála þeirri túlkun hv. þm. að nefndin hafi litið svo á að það væri mikilvægasti þátturinn. Á hinn bóginn, eins og ég gat um í lok ræðu minnar, hefur ríkisstjórnin falið nefndinni að huga sérstaklega að þessum þáttum og öðrum sem ég nefndi til sögunnar í framhaldsvinnu við meðferð málsins.