Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég endurtek að ég vona að þau fjölmiðlafyrirtæki sem fyrir eru í landinu geti það. Gerðar hafa verið miklar breytingar á 60 dögum, en hins vegar ætla ég ekki að leggja neinn dóm á það í smáatriðum. Það er mál sem verður að sjálfsögðu rætt en það hefur verið leyst úr margri flækju á 60 dögum, það er alveg ljóst. Það er nokkuð langur tími í viðskiptum.