Drífa Hjartardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég tel að það sé rangt að markaðsráðandi fyrirtæki eigi fjölmiðla hér á landi því að við verðum að tryggja lýðræðið. Eins og Samf. er mikið með lýðræðið á sínum vörum alla daga er ég aldeilis undrandi yfir því að þeir skuli ekki taka heils hugar undir frv.