2004-05-04 02:12:53# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, DJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[26:12]

Dagný Jónsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég held að mikil óskhyggja sé í gangi hjá hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni um að ég vilji eitthvað draga í land.

Afstaða mín er mjög skýr. Ég styð frv. Við getum samt ekki horft fram hjá því að áhöld hafa verið uppi varðandi bráðabirgðaákvæðið og gildistökuna. Ég veit að þetta verður rækilega skoðað í nefnd. Best er auðvitað að þetta standi allt og við munum sjá hvað sérfræðingar nefndanna munu segja um það.