Dagný Jónsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það var kannski erfitt að skilja einhverja ákveðna spurningu í máli hv. þm. Marðar Árnasonar í andsvari en ég man ekki betur en að í máli hv. þingmannsins í dag hafi hann opinberað miklar áhyggjur af samþjöppun. Kannski hefur sú skoðun hans breyst eitthvað sem á leið nóttina en ég vil bara segja að við erum að tryggja skilyrði fyrir fagmennsku með þessari dreifðu eignaraðild.
Ég sagði ekkert áðan að ég gæti bent á nein atriði í fjölmiðlum í dag en við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sínu.