Frsm. meiri hluta sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að lögin eru það skýr að eignir Þróunarsjóðs eiga að fara í hafrannsóknir og ég sé ekki að komnar séu neinar breytingar á því. Menn hafa einnig rætt um að ráðstafa þeim í varðveislu gamalla skipa og þar er tillaga hjá hæstv. menntmrh. Ég tel því ekki tímabært að taka þá umræðu meðan málið er í farvegi.