Forseti (Birgir Ármannsson):
Af þessu tilefni vill forseti taka fram að engar ákvarðanir hafa verið teknar um að gera nokkurn frest á störfum þingsins vegna fundarhalda í efh.- og viðskn. Þessar umræður hafa farið fram áður og forseti telur ekki tilefni til þess að verða við þessari ósk um frestun á fundinum.