Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá 7. þm. Suðvest., Þórunni Sveinbjarnardóttur, dags. 12. maí:
,,Þar sem ég fer nú í hluta fæðingarorlofs, með vísan til 12. gr. laga um þingfararkaup og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum, og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, sbr. 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Ásgeir Friðgeirsson ritstjóri, Kópavogi, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.``
Ásgeir Friðgeirsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.