![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanninum fyrir ákaflega málefnalega og ágæta ræðu. Það er bara ein spurning sem mig langar að leggja fyrir hann. Það lá fyrir áhugi í mörgum þingflokkum að taka á þessum fjölmiðlamálum með einhverjum hætti og vinna að þeim, m.a. vísa ég til tillögu sem rædd var í byrjun desember og síðan tillögu sem Samf. lagði inn. Spurningin er þá þessi:
Finnst hv. þingmanni ekki eftirsóknarvert að ná sátt í þessu máli milli þingflokka á Alþingi?