Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 16:04:04 (8272)

2004-05-15 16:04:04# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, BÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[16:04]

Birgir Ármannsson (andsvar):

Herra forseti. Ég hefði vissulega kosið að það væri meiri sátt um það frv. sem hér er fram komið, ég hefði vissulega kosið það. Ég tek hins vegar eftir því að hv. þm. virðist hafa svolítið aðra sýn á þessi mál en hann hafði þegar hann lagði sína ágætu þáltill. fram fyrir áramótin. Ég velti fyrir mér hvort afstaða hans byggist á málefnalegum sjónarmiðum eða því að hann einfaldlega getur ekki hugsað sér að styðja stjfrv. sem fram er komið.