Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 16:05:58 (8274)

2004-05-15 16:05:58# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, BÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[16:05]

Birgir Ármannsson (andsvar):

Herra forseti. Við hv. þingmaður lítum það greinilega ólíkum augum hvernig unnið var með þetta mál í allshn. Ég held að þegar upp verður staðið stöndum við uppi með afar gott nefndarálit frá meiri hlutanum og nokkuð langt eða a.m.k. efnismikið álit frá minni hlutanum. Árangurinn af störfum okkar í allshn. var allgóður.

Varðandi málþófið kalla ég það bara málþóf þegar menn koma hér og flytja sömu ræðurnar aftur og aftur, lesa upp sömu textana úr umsögnum aftur og aftur og lesa bókarkafla hvað eftir annað.