Birgir Ármannsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tel alveg afdráttarlaust að það geti ekki átt við að fjölmiðlafyrirtækið sé þarna undir. Þetta snýst um heimild markaðsráðandi fyrirtækis eða annars fyrirtækis til að eignast hlut í fjölmiðlafyrirtæki þannig að það væri að mínu mati fráleit túlkun að telja fjölmiðlafyrirtækið með í þeirri heildarveltu sem hámarkið vísar til.