![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Mörður Árnason:
Forseti. Þetta frv. er hættulegt fyrir fjölmiðlun í landinu, fyrir heilbrigða stjórnmálastarfsemi og fyrir viðgang íslenskrar menningar. Málatilbúnaður og ástæður þessa máls sýna vel vanmátt forustu Sjálfstfl. og viðhlæjenda hennar við þátttöku í þroskaðri lýðræðisskipan. Það á að henda þessu frv. sem fyrst út úr þinginu. Ég segi já.