Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 18:56:47 (8339)

2004-05-15 18:56:47# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, GAK (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[18:56]

Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér erum við að fjalla um mjög mikið álitamál sem mjög skiptar skoðanir eru um að standist stjórnarskrá okkar. Við í Frjálsl. munum ekki greiða þessu máli atkvæði eins og það er hér fram borið.

Ég tel, hæstv. forseti, að það hefði mátt ná sátt í þessu máli ef menn hefðu viljað vinna það á lengri tíma og með öðru lagi en hér hefur verið lagt upp með.