Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég ætla nú að vera eins og biluð grammófónplata eins og einu sinni var sagt. Hv. þm.: Ég get ekki svarað skýrar heldur en ég gerði hér áðan. Okkar áætlanir munu verða lagðar fram um leið og niðurstaða Eftirlitsstofnunar EFTA liggur fyrir. Ég hef sagt það þrisvar í þessum stól í dag og ég segi það þá í fjórða sinn. (BjörgvS: Allt er þá þrennt er.)