Umhverfismengun af völdum einnota umbúða

Miðvikudaginn 26. maí 2004, kl. 21:22:50 (9046)

2004-05-26 21:22:50# 130. lþ. 127.33 fundur 876. mál: #A umhverfismengun af völdum einnota umbúða# (skilagjald) frv. 82/2004, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur, 130. lþ.

[21:22]

Frsm. umhvn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá umhvn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, með síðari breytingum.

Með frumvarpinu er lögð til hækkun umsýsluþóknunar á umbúðir úr ólituðu plastefni.

Endurvinnslan hefur það hlutverk að taka við umbúðum til endurvinnslu og hefur einkarétt á þeirri starfsemi sem fellur undir lögin. Hækkunin er lögð til að beiðni fyrirtækisins til að tryggja rekstrargrundvöll þess. Í gögnum sem nefndin kallaði eftir vegna frumvarpsins kemur fram að allar umbúðategundir Endurvinnslunnar hafa skilað lítils háttar hagnaði nema ólitað plast þar sem vantar töluvert upp á. Ólitað plast telst frekar auðseljanlegt og nýtist í endurvinnslu og er því umhverfisvænt að því leyti. Hækkunin sem lögð er til er 0,40 kr. á hverja umbúðaeiningu. Lögin byggjast á því að hver gjaldflokkur standi undir sér. Þar sem markaðsaðstæður geta breyst getur þurft að breyta skilagjaldi til að bregðast við því. Atbeina Alþingis er þörf við hækkunina enda telst skilagjaldið vera skattur.

Nefndin mælir með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Sigurjón Þórðarson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu.

Umhvn. er einróma í áliti sínu.

Undirrituð hefur lagt fram brtt. sem lýtur að því að í stað þess að lögin öðlist gildi 1. júní 2004 gerist það 1. júlí 2004. Þetta er eingöngu vegna þess að annars tækju lögin gildi á miðju uppgjörstímabili.