Mörður Árnason:
Forseti. Með þessari atkvæðagreiðslu er hrundið þeirri atlögu sem hæstv. umhvrh. gerði að náttúru á Laxársvæðinu og Mývatni með því að lauma þessu bráðabirgðaákvæði inn í frv. Um leið og ég fagna ásamt heimamönnum norður þar þessum málalyktum bið ég um að hæstv. umhvrh. og aðrir ráðherrar hagi vinnubrögðum sínum á annan veg framvegis. Ég segi já.