Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Virðulegi forseti. Ég veit ekki annað en að skýrslan eigi að koma í dag eða í síðasta lagi á morgun. Hún var í prentun og síðast þegar ég fór úr ráðuneytinu töldu menn að hún kæmi í dag. Ég hef reyndar ekki kannað hvort hún er komin eða hvernig það er. Mér er sagt að hún sé alveg á næsta leiti og ég vona að það standi.
Það hefur svo sem ekki alveg gengið upp það sem hefur verið sagt um þetta áður og ég bið afsökunar á því.