Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég hef áður sagt, margoft, og notað mér þar málfrelsi mitt sem ég hlýt að ráða yfir að ég andmæli því og neita að byggja einhver svör hér á getsökum af þessu tagi í garð forseta Íslands. Mér finnst það algjörlega fyrir neðan allar hellur og mun ekki taka þátt í því. Ég hef margoft svarað þeirri spurningu þannig. Svar mitt liggur algjörlega fyrir.