Jöfnun flutningskostnaðar á sementi

Föstudaginn 28. maí 2004, kl. 13:12:31 (9370)

2004-05-28 13:12:31# 130. lþ. 130.31 fundur 690. mál: #A jöfnun flutningskostnaðar á sementi# (afnám laganna) frv. 63/2004, KLM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 130. lþ.

[13:12]

Kristján L. Möller (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt sem hv. þm. segir. Fyrri bréf og fyrri gögn sem komu inn gerðu það m.a. að verkum að sá sem hér stendur var mótfallinn því. En yfirlýsinguna sem ég var að lesa, sem er síðasta plaggið sem kemur frá Sementsverksmiðjunni, vil ég taka trúanlega og treysti að gangi eftir. Hækkunin sem spáð var, m.a. í þessum gögnum og því sem kom fram hjá formanni flutningsjöfnunarsjóðs sem var að spá hvernig þetta yrði, ekki er víst hvernig það hefði orðið í framtíðinni, en ég vil taka þessa yfirlýsingu sem gott og trúverðugt plagg, enda kemur það undirritað frá stjórn Sementsverksmiðjunnar, og þess vegna las ég það upp til að ramma það inn. Það verður síðan okkar að ganga eftir því að það gangi allt eftir sem ég ætla ekki að efast um eitt augnablik að muni gera.