Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ekki ætlaði ég mér í máli mínu að halla á hlut Reykjavíkurborgar eða hv. þm. Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrv. borgarstjóra, né reyna að eigna mér það verkefni sem hér hefur orðið að umtalsefni heldur nefndi það einungis sem dæmi um þau verkefni sem unnið er að í samfélaginu á þessu sviði.