Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 18:23:44 (1071)

2003-11-03 18:23:44# 130. lþ. 19.8 fundur 191. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# (meðferð hlutafjár) frv., forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[18:23]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er kannski fullmikið sagt að segja að formaður Samf. hafi tekið þetta mál á dagskrá þó að hann tæki undir þær hugmyndir sem hv. þm. Ásta Möller hefur margoft reifað í þinginu á undanförnum árum og fleiri úr hennar flokki. En það má segja að hann hafi sett þær hugmyndir Ástu Möller og okkar á dagskrá Samf. Ég er ánægður með það. Ég fagna því og óska flokknum til hamingju með það.

Í raun var þetta það eina sem ég varð var við í fjölmiðlum að vekti virkilega athygli á landsfundi Samf. ef frá eru talin framboð sem stundum voru þar á döfinni en varð svo minna úr en til stóð í upphafi.