Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Það stendur aldrei til í mínum flokki að kalla annarra manna flokka til á landsfundi okkar til að halda þar ræður. Hins vegar er það árátta hjá Samf., sem getur ekki notið sín sæmilega nema fá tvo flokksbundna sjálfstæðismenn til að vera aðalnúmer á fundinum. Það gerist ekki hjá okkur að við leitum til andstæðinga með þeim hætti. Við erum nægilega vel mannaðir, (Gripið fram í.) báðir eru flokksbundnir í Sjálfstfl. og eru þar (KLM: Dyggir og góðir jafnaðarmenn.) dyggir og góðir sjálfstæðismenn, eins og þú veist. Við erum á ýmsum sviðum einnig jafnaðarmenn, það er líka rétt.